Litir og aftur litir. Veiðiáhuginn heltók mig s.l. sumar. Eignaðist fyrstu fluguveiðistöngina og það verður ekki aftur snúið. Gullfallegir (og bragðgóðir) silungar í dásamlegu umhverfi...þetta er bara byrjunin. Olía á striga. 25 x 25.
Skissunni fylgt eftir
Friday, March 15, 2013
Saturday, June 16, 2012
Útskriftarverkefni
Íslenska þjóðsagan er arfur forfeðra til komandi kynslóða. Hún er jafnframt spegilmynd úr fortíð sem lýsir háttum, siðum og menningu liðins tíma þar sem stúlkur voru lítilsvirtar og nutu lítillar samúðar. Skottur voru vinsælt viðfangsefni þjóðsagna en skotta er vofa varnarlausrar stúlku sem missir líf sitt vegna mannvonsku og voru jarðneskar leifar hennar notaðar í illum tilgangi. Skotta fær enga samúð í sögunum þrátt fyrir meðferðina á þeim þegar þær voru á lífi. Ég ákvað því að sjóða saman nýja sögu þar sem áherslum var breytt og Skotta náði fram hefndum í lokin. Á lokasýningunni fékk áhorfandinn að skyggnast inn á sögusviðið með þrennum hætti. Hann hlustaði á upplestur á sögunni, horfði á málverkið af Skottu í tófulíki og fékk að halda á hrossleggnum sem geymdi hana. Viðtökurnar voru frábærar!
Saturday, April 28, 2012
Broddgöltur
Dýrin sem lifa villt í náttúrunni hafa svo mikinn karakter. Broddgeltir eru líka ómótstæðilegir!
Olía á striga, stærð 20 x 30
Friday, March 30, 2012
Geimfarinn
Í janúar árið 1952 var skemmtun haldin í gamla Þinghúsinu við Hrafnagil. Sjónleikurinn Geimfarinn var þá frumsýndur. Höfundurinn var hann móðurafi minn, Hreiðar Eiríksson. Afi og amma voru einnig í leikarahópnum. Árið 1955 flutti Ríkisútvarpið uppfærslu Útvarpsleikhússins á Geimfaranum. Leikarar voru m.a. Rúrik Haraldsson og Margrét Ólafsdóttir. Haustið 2011 fékk ég þennan gimstein til meðhöndlunar og hannaði bók í Indesign. Ég var svo heppin að ljósmyndir, frá uppfærslunni árið '52, fundust í fórum ömmu Ragnheiðar. Þær eru ómissandi fyrir heildarverkið. Mér þykir rosalega vænt um þessa bók.
Tuesday, March 27, 2012
Ljótleiki
Verkinu er ætlað að
vera í senn áhrifamikið og minna um leið á ljótleika manneskjunnar. Harkalegur og ofbeldisfullur raunveruleikinn afhjúpast þegar hulunni er svift af dulúðlegum byssumanni bíómyndanna. Ofbeldi og ljótleiki byssunnar birtist sem sláandi fyrirsagnir fjölmiðla.
Blek á pappír. Grafík og umbrot með aðstoð Lightroom og InDesign.
MyndAk, 2011, "Fegurð - Ljótleiki", leiðbeinandi: Aðalsteinn Þórsson.
Sunday, March 11, 2012
Verksmiðjan á Hjalteyri
Í síðasta áfanganum í skólanum vorum við undir leiðsögn Þórarins Blöndals og Gústafs Bollasonar. Við fengum að nota verksmiðjuna á Hjalteyri og ég ákvað að nýta mér munstrið/áferðina á veggjum og gólfum. Ég tók mót af litlum afmörkuðum svæðum og bjó til afsteypu. Ég hugsaði þetta sem ákveðna skrásetningu á húsinu.
Hallgrímur Pétursson
Þetta textaverk gerði ég í skriftaráfanga hjá Rannveigu Helgadóttur. Textinn er um Hallgrím Pétursson. SELT
Subscribe to:
Posts (Atom)